Óskalistinn #1

Það styttist óðum í jólin, ekki nema 12 dagar þar til allir pakkar verða komnir undir tréið, jólamaturinn eldaður og fjölskyldurnar opna pakkana sína saman. Í tilefni af því fannst mér tilvalið að gera óskalista og deila með ykkur. 

Mér finnst alltaf gaman að fá gjafir og enn skemmtilegra ef þær hafa notagildi fyrir mig og er eitthvað sem mig persónulega vantar eða langar í. Það er mis auðvelt að gefa fólki gjafir og einnig mis auðvelt að gefa mér gjöf, áhugamálin eru alltaf klassísk og myndi það þá vera eitthvað ljósmynda, förðunar eða heimilistengt á mínum óskalista .. Einmitt sem þið sjáið hér, hér er óskalisti sem ég sýndi manninum mínum í tilefni komandi jóla. 

Ullarteppið frá Hrím er eitthvað sem mig hefur svo lengi langað í og ættu allir að eiga eitt svoleiðis í sófanum hjá sér þegar kalt er í veðri. Það er líka svo flott í útliti. / FAB Holiday Cheers kittið frá First Aid Beauty fæst hjá Fotia.is, ég hef ekki enn prófað þetta en vona innilega að svona leynist í mínum jólapakka þar sem ég hef lesið svo rosalega góða hluti um þetta sett og þessa húðvörulínu. (Línan er í Limited Edition) / Clarisonic Mia 2 hreinsiburstarnir eru frekar í dýrari jólagjafa kanntinum en mér fannst ég hreinlega bara ekki getað sleppt þeim inn á þennan óskalista. / Þrífóturinn frá Reykjavikfoto.is er fullkominn fyrir ljósmyndarann í fjölskyldunni. / Hin umtalaða augnskugga palletta, Morphe er vinsælt merki hér á landi og liggur á allra vörum, palletturnar fást í fleiri litum en þessi heitir 35C Multi Matte. / Í kjólinn fyrir jólin - En hvað með símann þinn? Minn er kominn í þessi fínu spariföt fyrir komandi hátíðir og ver þetta símann á öllum hliðum, ásamt því að líta bara svona glæsilega út! 





1. Fallegt ullarteppi frá Hrím, fæst í mörgum litum en þessi tiltekni er brúnn fæst hér 2. FAB Holiday Cheers kittið frá First Aid Beauty fæst hér 3. Clarisonic Mia 2 hreinsiburstarnir fást í verslunum Hagkaups, en hægt er að skoða þá og einnig versla hér 4. Camlink TP-2800 þrífóturinn fæst hér 5. Morphe 35C - Multi Matte palletan fæst hér 6. Sílikon símahulstur fæst hér

No comments