Óskalistar #2

Ekki nema 10 dagar til jóla og enn eru margir sem ekki hafa klárað jólagjafa innkaupin. Ég tók saman tvo lista, annars vegar fyrir snyrtifræðinginn eða bara áhugamanneskjuna um förðun og hins vegar þann sem finnst gaman að hafa heimilið sitt fallegt. 

Fyrir förðunarfræðinginn: Glitter Me í litnum Private Jet er partur af jólalínu Sleek sem fæst hjá Haustfjord.is, hentar í jólapakkann eða bara sem partur af jóladressinu, einstaklega fallegur litur. / Liturinn Matte Flirty frá Milani er litur sem ég fell alltaf fyrir, ég veit ekki hvað ég á marga svona en enda alltaf á að kaupa annan, þessi verður klárlega notaður við jóladressið en hann fæst hjá Haustfjord.is / ILNP Holiday 2015 í litnum Cherry Luxe er einstaklega fallegt og jólalegt naglalakk sem fæst hjá Haustfjord.is / Morphe burstarnir eru burstarnir sem eru á allra vörum, þetta sett inniheldur 12 bursta í black and white með einstaklega fallegu hulstri. Burstarnir fást hjá Fotia.is / Blush stripes - Illuminating frá Ofra Cosmetics er í forsölu hjá Fotia.is, ótrúlega fallegur blush með crazy flottum pigmentum. / Jólalína First Aid Beauty sem fæst hjá Fotia.is inniheldur nokkuð mörg jólasett, þar á meðal FAB Freshen Up, en það inniheldur Vitamin Hydrating Mist og Ultra Repair Lip Therapy sem hentar afskaplega vel í þessum jólakulda. / Boombastic maskarinn frá GOSH fæst einnig hjá Fotia.is en hann hefur fengið frábærar viðtökur víðsvegar. / Prime'n setting powderið frá GOSH hentar vel fyrir alla þá sem hafa áhuga á snyrtivörum, þú finnir það inná Fotia.is / HP Pro concealerinn frá LA Girl er þessi sem þið sjáið flesta förðunarfræðina nota, hann hefur fengið æðislegar viðtökur og ekki skemmir fyrir hvað hann er á góðu verði, þú finnur þennann í ýmsum litum inn á Fotia.is 

***

Fyrir heimilið: Good luck púðinn er hannaður af Umemi, hann hentar inn á hvert heimili og gefur sófanum fallegt heildar útlit, Good luck fæst hjá Hrím og í 10 mismunandi litum. / Krumminn er alltaf fallegur og fallegt tákn fyrir landið okkar, hann hentar einstaklega vel sem gluggaskraut eða til að nota fyrir upphengingar á hlutum, t.d. kjólum, skartgripum eða öðrum hlutum, hann fæst hjá Hrím í 2 mismunandi litum og stærðum. / Jón í lit er einstaklega fallegt veggskraut, hann er hannaður af Almari og fæst hjá Hrím í 27 mismunandi litum. / Marmari er alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann er fallegur við öll tilefni, hvort sem það sé sem skraut eða til að bera eitthvað fram, Marmaraskálin fæst hjá Hrím. / Hangandi blómapottur er tilbreyting frá þeim sem eru á borðunum okkar eða gólfum, hann fæst hjá Hrím í 2 mismunandi gerðum og 2 litum í hvorri gerð. / Vírkarfan hentar ein og sér eða með borðplötu yfir og þú ert komið með nytsamlegt og gullfallegt stofuborð eða hliðarborð, karfan á heima á hverju heimili og er svo ótrúlega nytsamleg, hún fæst hjá Hrím í fleiri litum og stærðum. / Nur bakkarnir finnst mér æðislegir, þeir eru til í fleiri litum og stærðum hjá Hrím en þeir henta undir svo ótrúlega margt. / Omaggio vasinn er náttúrlega bara það fallegasta, margir litir og stærðir fást af honum hjá Hrím og veitir hann auganu rosalega fagra sjón. / Hreindýra ilmkertið fæst í stórum og litlum stærðum hjá Hrím, einnig er hægt að fá fleiri myndir á það, ásamt ilmum. 





 1. FAB freshen up fæst hjá fotia.is 3.290 2. Glitter Me - Private Jet fæst hjá haustfjord.is 1.790 3. GOSH Prime'n set powder fæst hjá fotia.is 2.490 4. ILNP - Cherry Luxe fæst hjá haustfjord.is 2.990 5. Matte Flirty fæst hjá haustfjord.is 1.890 6. Blush Stripes Illuminating fæst hjá fotia.is 3.990 7. GOSH  Boombastic Maskari fæst hjá fotia.is 1.990 8. Morphe 12 bursta sett fæst hjá fotia.is 5.990 9. LA Girl Pro Concealer fæst hjá fotia.is 990.



1. Omaggio vasi, 20 cm fæst hjá hrim.is 8.490 2. Hangandi blómapottur fæst hjá hrim.is 6.990 3. Hreindýr ilmkerti, stórt fæst hjá hrim.is 6.990 4. Krummi í vír, svartur stór fæst hjá hrim.is 5.890 5. Vírkarfa svört, miðstærð fæst hjá hrim.is 11.900 6. Good luck, grár fæst hjá hrim.is 20.990 7. Jón í lit fæst hjá hrim.is 6.990 8. Marmaraskál, 26 cm fæst hjá hrim.is 14.990
 9. Nur bakki hár, svartur stór fæst hjá hrim.is 7.990.

No comments