Frá 2o15 til 2o16


Nýtt ár - Ný markmið - Nýjar áskoranir - Ný upplifun! 

Áramótaheit er stór partur af nýju ári og er ég engin undantekning, spurningin er bara hvort ég nái að fylgja þeim í gegn þetta árið, en ég er vön að setja mér nokkur markmið og auðvitað geri ég mitt besta til að halda þeim út í gegn allt árið. Markmið eru mis auðveld en lykillinn er bara að taka þetta í skrefum og skipuleggja sig vel. 

Ég vil óska lesendum, vinum og vandamönnum gleðilegs nýs árs, ég þakka fyrir það liðna á árinu og vona að árið 2016 verði jafn gott og árið 2015. 

Árið 2015 hefur verið viðburðaríkt fyrir okkur fjölskylduna, uppfullt af ævintýrum, breytingum, nýjum vinum og endurfundum við gamla. Við ætlum árinu 2016 jafn mikilli spennu, uppákomum og smávægilegum breytingum.

Njótið þessa síðasta dags árinsins og sjáumst hress og kát að nýju ári. 

No comments